Hvernig á ég að bóka í ferðina
Til að bóka í ferðina geta viðskiptavinir farið inn í bókunarvél okkar.
Bókunarvélin okkar er einföld og takmörkuð og vonumst við til þess að fólk sýni því skilning.
Ef viðskiptavinir þurfa á aðstoð að halda eða eru með séróskir varðandi sína bókun hægt að hafa samband við starfsfólk okkar í síma 4600620, senda tölvupóst á sport@verditravel.is eða arni@golfsaga.is, eða koma á söluskrifstofu okkar.
Þjónustufulltrúar okkar hjálpa ykkur með glöðu geði.
Opið er á milli 09:00-16:00 alla virka daga.
Staðfestingargjald og fullgreiðsla
Staðfestingargjald í ferðina er 50.000 kr. per farþega.
Staðfestingargjald er óendurkræft.
Ferð skal vera fullgreidd eigi síðar en 6 vikum fyrir brottför.
Akstur til og frá flugvelli
Innifalið í pakkanum er skipulagður akstur til og frá flugvelli erlendis.
Einnig er akstur á helstu hestatengdu viðburði ferðarinnar innifalið í verði.
Starfsmenn VERDI GolfSaga / fararstjórar ferðarinna munu vera á svæðinu og aðstoða farþega eftir fremsta megni.
Fararstjórn
Fararstjóri í ferðinni er Súsanna Sand Ólafsdóttir.
Hún mun bjóða uppá persónulega þjónustu á svæðinu og aðstoða farþega okkar eftir fremsta megni.
Fæði á hótelinu
Í þessari ferð er hálf fæði innifalið á hótelinu. Með hálfu fæði er átt við morgunverð og kvöldverð.
Sætisfrátekning og betri sæti
Leitið upplýsinga hjá starfsfólki okkar í símar 4600620 eða sport@verditravel.is.
Covid málefni
Við hvetjum fólk til að kynna sér reglunar um ferðalög til og frá Íslandi. Hér má nálgast upplýsingar á Covid.is.
Við hvetjum farþega til þess að kynna sér vel gildandi sóttvarnarreglur – bæði fyrir brottför og komu.
Afbókun, nafnabreytingar og annað
Afpöntun ferðar og endurgreiðsla fer eftir Ferðaskilmálum.
Ekkert er hægt að kaupa forfallatryggingu í ferðina.