Fara í efni
Menningar gönguferð í Flórens
Ferðalýsing

Menningargönguferð í Flórens og nágrenni.
22.maí-29.maí 2025

Fararstjóri er Steinunn Harðardóttir

Verdi og Göngu-Hrólfur bjóða upp á einstaklega skemmtilega pílagrímagöngu í haust.

Göngu Hrólfur og Verdi bjóða upp á glæsilega menningargönguferð í Flórens og nágrenni borgarinnar vorðið 2025. Farið verður í auðveldar og skemmtilegar gönguferðir um leið og fræðst er um snillingana Leonardo da Vinci og Michelangelo. Fyrsti áfangastaðuer er bærinn Vinci sem Leonardo da Vinci er kenndur við og nágrenni hans. Þar verður gist í tvær nætur, gengið um einstakt landslag ,fræðst um meistarann og farið á söfn honum helguð. Næst er haldið til hins skemmtilega bæjar Fiesole en hann er um 300 metrum ofar en Flórensborg. Um bæinn orti Davíð Stefánsson fallegt kvæði. Gengið verður um hæðirnar þar sem Leonardo da Vinci reyndi fyrst að fljúga og rústir frá tímum Etruska og Rómverja verða skoðaðar. Þá liggur leiðin til Flórens gegnum bæinn Settingnano en þar ólst Michelangelo upp hjá steinhöggvarafjölskyldu og lærði listina að höggva stein. Gist verður á fjögurra stjörnu hóteli í miðborginni. Einn daginn verður haldið í hið fræga Chianti vínræktarhérað, gengið eftir fornum stígum, vínbúgarður heimsóttur og bragðað á víni staðarins. Einnig verður snæddur spennandi kvöldverður hjá ljóðskáldi og slátrara áður en haldið er aftur til Flórens. Góður tími gefst til að skoða Flórens bæði með staðarleiðsögumanni og á eigin vegum á frídegi.

22.5 Keflavík - Vinci 1.dagur
Lent í Milano um 14.10 og ekið um 4 tíma þar til komið er í nágrenni bæjarins Vinci sem Leonardo da Vinci er kenndur við. Þar gistum við í skemmtilegri bændagistingu, Agriturismo IL PIASTRINO (https://www.ilpiastrino.it/). Þegar við höfum komið okkur fyrir er kvöldmatur á hótelinu.

23.5 gönguferð um Vinci og ekið til Fiesole - 2.dagur
Eftir morgunverð er haldið í göngu um dæmigert Toscana landslag sem einkennist af ólívulundum, ávölum hæðum, vínekrum, miðalda kirkjum og kastölum. Það er nánast eins og maður sé inni í málverki. Eftir lautarverð á fallegri hæð er haldið til baka til Vinci. Þar fáum við innsýn í líf og sköpunarverk mannsins sem gerði bæinn Vinci heimsfrægan og heimsækjum söfn sem eru tileinkuð honum. Leonardo safnið og æskuheimili Leonardos sem er á hæð fyrir ofan bæinn. Frjáls tími síðdegis jafnvel hægt að slaka á við sundlaugina ef veður leyfir. Kvöldverður á hótelinu. Gengið um 5 tíma 8 km,hækkun og lækkun 325 m.

24.5-Fiesole - 3. dagur 
Þá er haldið til næsta áfangastaðar. ( ekið um einn tíma). Fiesole er skemmtilegur lítill bær sem er 295 metrum ofan við Flórens og í 10 km fjarðlægð. Þó Fiesole sé nú hluti af borginni þá er bærinn mun eldri. Við byrjum á að fara í stutta göngu um bæinn og skoðum einstakar minjar sem þar eru bæði frá tímum Etruska og Rómverja. Etruskar reistu þarna virkisbæ á 8.öld fyrir krist og enn má sjá rústir af hofi, borgarmúrum og grafhýsum. Síðar yfirtóku Rómverjum bæinn og efldu. Þar er enn vel varðveittur rómverskur leikvangur og rústir af rómverskum böðum. Fiesole var í margar aldir í samkeppni við Flórens sem hafði yfirhöndina að lokum og á 14.öld bjuggu þar ríkir og valdamiklir Flórensbúar. Skammt undan eru svo hæðirnar þar sem Leonardo da Vinci reyndi flug. Við finnum okkur góðan stað fyrir lautarverð áður en við heimsækjum Etrúskt og Rómverskt safn þar sem við fáum góða innsýn í sögu staðarins. Í Ítalíuför sinni kom Davíð Stefásson til bæjarinns og orti um hann kvæði þar sem segir meðal annars.; Fiesole við Flórens, er fátækur klausturbær. Á mörg hundruð ára múrum, mosinn í friði grær.... Fiesole við Flórens, er fegurst um sólarlag. Þægileg ganga 3-4 tímar. Um 100 m.hækkun og lækkun. Síðdegis er svo rólegur tími og hægt að slaka á við sundlaugina á hótelinu.. Gist á Hotel Villa dei Bosconi http://www.villadeibosconi.it/ sem er í útjaðri bæjarins . Kvöldmatur á veitingastað í nágrenninu ca.800m ganga.

25.5. Fiesole -Settignano - 4. dagur 
Haldið er gangandi frá Fiesole til Settignano og síðan með strætó til Flórens, farangur verður fluttur á hótelið. Í hádeginu er lautarverður á fallegum stað. Michelangelo Bunorotti ólst upp hjá steinhöggvarafjölskyldu í Settingnano vegna móðurmissis. (Húsið er í dag Villa Michelangelo) Gengið er um landslag sem einkennir Toscana og við blasa ólívulundir, myndarlegir búgarðar og fallegt útsýni yfir Flórens. Fyrir ofan eru svo hæðirnar þar sem Leonardo da Vinci reyndi fyrst að fljúga árið 1506. Leiðin liggur framhjá steinnámum sem hafa lagt til stein í margar stórbyggingar og hallir í Flórens í gegnum aldirnar. „pietra serena“ Ein af þessum námum var í eigu Bunorotti fjölskyldunnar og faðir Michelangelos átti húsið sem uppeldisfjölskylda sonarins bjó í. Michelangelo heillaðist svo af höggmyndalistinni að það kom ekkert annað til greina en að verða myndhöggvari. Örlögin urðu þó til þess að meðal hans frægustu verka eru freskur eins og í Sixtínsku kapellunni. Gengið 5 tíma 8 km. hækkun 260 m lækkun 280 tíma. Gist næstu fjórar nætur á hóteli í Flórens og góðu fjögurra stjörnu hóteli í miðborginni, Palazzo Castri Boutique Spa&Garden https://www.palazzocastri.com/it Kvöldverður á eigin vegum.

28.5. Skoðunarferðir um Flórens -
5.dagur 
Flórens er ein glæsilegasta lista- og menningarborg Ítalíu. Borgin er fræg fyrir að hafa alið marga helstu snillinga endurreisnarinnar á sviði vísinda, heimspeki og lista, svo sem Leonardo da Vinci, Galileo Galilei, Michelangelo Buonarroti og Niccolò Machiavelli. Á götum og torgum eru einstök listaverk og byggingar. Um morguninn heimsækjum við áhugaverða staði í borginni með staðarleiðsögumanni svo sem kirkjuna Santa Maria Novella, Medici kapelluna í San Lorenzo baselikunni og einstakt gamalt apótek. Eftir hádegishlé verður farið í létta göngu upp í hæðirnar handan Arni-árinnar. Haldið er upp á Piazzale Michelangelo en þaðan er einstakt útsýni yfir borgina. Síðan er gengið áfram upp í San Miniato kirkjuna sem stendur einstaklega fallega fyrir ofan torgið. Á leiðinni til baka er jafnvel komið við í Branacci chapellunni(ef hún er opin) í Santa Maria del Carmine kirkjunni, þar eru einstakar freskur frá upphafi endurreisnartímanns. Gerð kapellunnar hófst árið 1386 og helstu listamenn að freskunum eru Masolino da Panicale, Masaccio, og Filippino Lippi. Kvöldmatur á eigin vegum.

29.5. Ganga, matur og vínsmökkun í Chianti vínhéraðinu - 6.dagur
Um morguninn er haldið með almenningsvagni frá Flórens um 50 mín.akstur til Greve sem er einn af fjórum fornum bæjum í Chianti bandalaginu. Eftir stutta göngu um bæinn er haldið eftir ávölum hæðum héraðsins sem einkennist af vínekrum, sýpristrjám og stórum búgörðum frá miðöldum. Á leiðinni gefst gott tækifæri til að fræðast um leyndarmál þessa einstaka og þekkta vínræktarhéraðs. Í hádeginu er stoppað í Montefioralle litlum og fallegum bæ sem trónir yfir sléttunni. Þar heimsækjum við vínbúgarð og brögðum á hinu fræga Cianti rauðvíni yfir léttum hádegisverði. Göngunni er síðan haldið áfram til Panzano. þar getum við slakað aðeins á áður en við fáum ríkulegan kvöldverð á veitingahúsi slátrarans og ljóðskáldsins Cecchini Butchery „Macelleria Cecchini – Panzano in Chianti“ . Þar er boðið upp á alla vega kjötrétti. Síðan er farið með rútu til Flórens. Gengið ca. 6 tíma,10 km, hækkun 450m lækkun. 150.

30.5. Frjáls dagur í Flórens - 6.dagur
Flórens er skemmtileg borg sem gaman er að ganga um og njóta. þar eru einstök menningarverðmæti auk þess sem víða er hægt að setjast niður á torgum, kaffihúsum og veitingastöðum og virða fyrir sér mannlífið. Hér eru dæmi um nokkra áugaverða staði.: Dómkirkjan, Santa Maria Del Fiore, nefnd eftir liljunni, sem er í skjaldarmerki Flórens. Bygging hennar hófst 1296. Kúpullinn er frá 1420-34, er eftir Filippo Brunelleschi. Santa Maria Novella, Dóminikanakirkja frá 1278-1350. í gotneskum stíl. Í kór eru freskur eftir Ghirlandaio og samkvæmt ævisögu Micelangelos var hann nemandi Ghirlandiano þegar hluti þeirra var gerður.
Babtisterium. Átthyrnd kúlubygging, sem var reist yfir rústir frá rómverskum tíma á 11.-13.öld. Frægastar eru Þrjár gylltar hurðir með lágmyndum og nefndi Michelangelo þær „hlið paradísar.“ (1330-1452). Loggia Dei Lanzi er klassísk bygging frá 1376-83. Áður notuð við opinberar athafnir í borginni.
Palazzo Vecchio, ráðhúsið frá 1298-1314, Vinstra megin við innganginn er endurgerð af 'Davíð' eftir Michelanglo.
Galleria Degli Ufizzi Byggt 1560-74 sem stjórnsýsluhús en er núna málverkasafn með 4.500 myndum. 700 myndir eru sýndar hverju sinni og ná þær ævinlega yfir þróun flórenskrar menningar auk feneyskrar (hollenzkrar og þýskrar) á svið málaralistar. Ponte Vecchio. Elzta brú borgarinnar (endurnýjuð 1345). Gullsmiðabúðir á brúnni. San Lorenzo, elzta kirkja Flórens upphaflega utan borgarmúra. Byggð fyrst 393 af heilögum Ambrosíusi. Endurreist á 11.öld. Líklega lagði Leonardo da Vinci þar hönd á plóginn árið 1472 þegar hann var tvítugur. Auk fjölmargra lista og menningarlegrlegra safna má benda sérstaklega á söfn um Leonardo Da Vinci, Galileo Galilei og Dante. Matur er á eigin vegum. Þeir sem hafa áhuga á að snæða á Lapi kránni sem Davíð Stefánsson rómaði svo mjög í ljóði sínu „Lapi listamannakrá.“ Þurfa væntanlega að panta með mjög góðum fyrirvara.

Ath þeir sem vilja nota þennan dag til að skoða Uffici safnið, Bargello með styttnni af Davíð eða Dómkirkjuna þurfa að ákveða það og panta með góðum fyrirvara.

31.5: Brottfardagur Frjáls tími áður en haldið er út á flugvöll og flogið heim.

Erfiðleikastig er metið sem eitt fjall.