Fara í efni
Heilsuferð til Madeira
Hótelið á Madeira

Vidamar Resort Hotel

Frábært 5***** hótel 

 

Hótelið er einkar glæsilegt með fallega hönnun og öll helstu þægindi, hér er allt til alls. Frábær staðsetning á ströndinni í fallegu umhverfi.
Á hótelinu eru fimm veitingastaðir sem bjóða upp á mikla fjölbreytni í mat.

Hótelgarðurinn er mjög vel skipulagður, stór og fallegur en í honum eru fjórar sundlaugar og skemmtilegur gróður, þar á meðal pálmatré. Einnig er góð aðstaða til sólbaðsiðkunar í garðinum. Útsýnið yfir Funchal flóa er stórbrotið.
Á hótelinu er góð líkamsræktaraðstaða og ýmsir íþróttavellir sem hentar einstaklega vel fyrir hreyfiferð . Einnig er þar flott heilsulind með sánu, tyrknesku baði, fjölbreyttum sturtum og beinum aðgangi út að sjónum.

Fjölbreytt afþreying er á hótelinu, til dæmis er hægt að fara að kafa, prófa aðrar vatnaíþróttir, spila skvass eða taka þátt í slökunarstundum. Á kvöldin er oft spiluð lifandi tónlist á barnum.

Á hótelinu eru 300 herbergi af ýmsum stærðum og gerðum en í þeim öllum eru þægindin í fyrirrúmi. Herbergin eru björt og rúmgóð, innréttingar eru klassískar og húsgögn eru falleg. Flísar eru á gólfum. Í herbergjunum er loftkæling, frítt internet, flatskjársjónvarp með gervihnattastöðvum, ketill, skrifborð, lítill ísskápur og öryggishólf.
Á baðherbergjum er sturta og baðkar, hárþurrka, sloppar og inniskór ásamt helstu snyrtivörum. Öllum herbergjum fylgja svalir eða verönd með útihúsgögnum.

Nánar um hótelið hér