Hvernig á ég að bóka í ferðina
Til að bóka í ferðina geta viðskiptavinir farið inn í bókunarvélina og bókað ferðina.
Bókunarvél okkar er einföld en nauðsynlegt er að setja inn umbeðnar upplýsingar um farþega.
Við gerð bókunar þarf annaðhvort að greiða staðfestingagjald eða fullgreiða bókunina.
Einnig er hægt að hafa samband við starfsfólk okkar í síma 4600620 (VERDI Sport), senda tölvupóst á sport@verditravel.is eða koma á söluskrifstofu okkar. Þjónustufulltrúar okkar hjálpa ykkur með glöðu geði.
Bókunargjald er rukkað ef bókað er í gegnum þjónustufulltrúa okkar.
Opið er á milli 09:00-16:00 alla virka daga.
Staðfestingargjald og fullgreiðsla
Staðfestingargjald í ferðina er 50.000 kr. per farþega.
Staðfestingargjald er óendurkræft.
Ferð skal vera fullgreidd eigi síðar en 6-8 vikum fyrir brottför.
Viðskiptavinir fá senda greiðsluhlekki í tölvupósti þar sem þeir geta greitt ferðina sína. Einnig er hægt að greiða ferðina hjá sölufulltrúum okkar.
Akstur til og frá flugvelli
Innifalið í flest öllum pakkaferðum okkar er akstur til og frá flugvelli í Manchester og Liverpool. Pakkaferðir okkar eru unnar í samvinnu við Liverpool klúbinn á Íslandi.
Nánari upplýsingar um tímasetningar og annað slíkt mun berast til farþega í ferðalýsingu, sem send verður út til farþega c.a 2 vikum fyrir brottför.
Ef akstur er ekki innifalinn í pakkaferð ætti það að koma skýrt fram.
Fararstjórn
Íslenskumælandi fararstjóri er á okkar vegum í ferðinni.
Ef fararstjórn er ekki innifalin í ferðinni þá mun það koma skýrt fram.
Nánari upplýsingar hjá sölufulltrúum okkar.
Sætisfrátekning og betri sæti
Í pakkaferðum okkar erum við ekki að bjóða upp á sætisfrátekningar eða betri sæti í flugum.
Afbókun, nafnabreytingar og annað
Afpöntun ferðar og endurgreiðsla fer eftir Ferðaskilmálum.
Ekkert er hægt að kaupa forfallatryggingu í ferðina.
Farangursheimild í flug
Farangursheimild í flugið er sem hér segir:
Icelandair: 23kg innritaður farangur og handfarangurstaska.
Play: 20kg innritaður farangur og lítill bakpoki handfarangur.
Skoðunarferð um völlinn
Hægt verður að bóka skoðunarferð um völlinn.
Verð fyrir fullorðan: 4.500 kr.
Verð 0-15 ára: 2.500 kr.
Nánari upplýsingar verða í ferðalýsingu sem farþegar fá senda til sín c.a 2 vikum fyrir brottför eða hjá starfsfólki okkar sport@verditravel.is
Vildarpunktar
Ekki er hægt að greiða fyrir ferðina með Vildarpunktum Icelandair.
Farþegar sem ferðast í flugi með Icelandair á okkar vegum fá vildarpunkta fyrir flugið sitt.
Covid málefni
Við hvetjum fólk til að kynna sér reglunar um ferðalög til og frá Íslandi. Hér má nálgast upplýsingar á Covid.is.
Við hvetjum farþega til þess að kynna sér vel gildandi sóttvarnarreglur – bæði fyrir brottför og komu.
ETA - Rafrænt ferðaleyfi til Bretlands (eftir 2. apríl 2025
Frá og með 2. apríl 2025 þurfa Íslendingar á leið til Bretlands að hafa sótt um rafrænt ferðaleyfi (ETA, Electronic Travel Authorisation) áður en þeir ferðast en opnað verður fyrir umsóknir 5. mars 2025.
Íslenskum og öðrum erlendum ríkisborgurum, sem ekki hafa dvalarleyfi í Bretlandi, verður skylt að hafa fengið ETA áður en þeir ferðast til Bretlands óháð því hvort lokaáfangastaður sé Bretland eða um millilendingu sé að ræða.
Þetta á bæði við um þá sem ferðast til Bretlands í einkaerindum og styttri vinnuheimsóknum.
ETA kostar GBP 10 og gildir í tvö ár frá útgáfudegi eða þar til vegabréf viðkomandi rennur út ef það er innan þessara tveggja ára.
Auðveldast er að sækja um ETA með „UK ETA app“ smáforriti, fyrir iPhone og Android síma, en einnig er hægt að sækja um á vefsíðu breskra stjórnvalda, GOV.UK.
Sjá hér upplýsingar frá Stjórnarráði Íslands
ETA umsóknir sem og önnur ferðaleyfi eru ávallt á ábyrgð farþegans.