Campoamor
FÓTBOLTI - ÆFINGAFERÐIR
Campo Amor er frábær valkostur jafnt fyrir meistarflokka sem og unglingalið. Á svæðinu má finna fyrsta flokks grasvelli og fullkomna æfingaaðstöðu.
Flogið er í beinu flugi til Alicante og aksturinn frá flugvelli að hóteli tekur um 50 mínútur.
Campo amor hefur verið vinsæll áfangastaður fyrir íslensk lið í æfingaferðir en svæðið heldur vel utan um hópa og ættu allir að geta fundið eitthvað við hæfi.
Gist er í 2ggja - 3ggja manna herbergjum á góðu hóteli, staðsett við æfingasvæðin. Á hótelinu er hálft fæði í boði (morgun og hádegisverður) en einnig hægt að bæta við kvöldverðum.
Campoamor veitir fyrsta flokks þjónustu til liða á svæðinu og er drykkjarvatn innifalið á öllum æfingum og með öllum máltíðum.
Æfingaleikir við spænsk lið er möguleiki.
Miklir afþreyingarmöguleikar í næsta nágrenni.
Hafið samband við VERDI Sport á netfanginu sport@verditravel.is til að fá nánari upplýsingar.
Innifalið í pakkanum:
- Flug, skattar og taska
- Gisting með hálfu fæði
- Akstur til og frá flugvelli
- Ótakmarkaður aðgangur að æfingavöllum
- Allur helsti aðbúnaður eins og keilur, stangir, mörk o.s.frv.
- Aðgangur að Spa og tækjasal
- Nuddherbergi og/eða búningsherbergi
- Þvottur á íþróttafatnaði daglega
- Vatn á allar æfingar
- Afþreyingarsalur með billiardborði og fleiru
VERDI býður upp á æfingaferðir til Campoamor en staðurinn hefur verið geysivinsæll meðal íslenskra liða undanfarin ár.
Hér má sjá nánari upplýsingar um staðinn.
Fínt hótel við fótboltavelli. Fín herbergi. Aðstaða á hótelinu til fyrirmyndar að öllu leyti. Fundarsalir. Borðtennis - og billiardborð. Þráðlaust internet á öllu hótelinu. Útilaug og sólbaðssvæði. Spa og líkamsrækt. Útilaug og sólbaðssvæði. Þvottur á íþróttafatnaði daglega.
Ferðaskilmálar
Ferðaskilmálar VERDI Travel